10.01.2012

Söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar

Kæru vinir. Miðvikudaginn 11.janúar mun félagsmiðstöðin Týr halda sína árlegu söngkeppni í húsnæði sínu í Víkurröst. Söngkeppnin er forkeppni fyrir Norðurlandskeppnina sem haldin verður í lok janúar. Fimm atriði úr þeirri keppni keppa svo fyrir hönd Norðurlands á söngkeppni Samfés - samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi. Það er því til mikils að vinna. Í söngkeppni Týs eru bara skráð tvö atriði en það er ljóst að annað atriðið mun fara áfram í Norðurlandskeppnina. Allir íbúar Dalvíkurbyggðar eru velkomnir á keppnina og opnar húsið klukkan 19:30. Keppnin sjálf hefst svo klukkan 19:45.

Deila

Til baka