Stjórnsýsla Dalvíkurbyggðar
Stjórnsýsla í Dalvíkurbyggð fer eftir sveitarstjórnarlögum, stjórnsýslulögum og samþykktum og reglum sveitarfélagsins sem sett hafa verið um starfsemina. Af öðrum lögum ber að nefna upplýsingalög og lög um persónuvernd sem stjórnsýsla Dalvíkurbyggðar skal fara eftir.
Bæjarstjórn fer með æðsta vald í málefnum sveitarfélagsins og má sjá nánar um verkefni bæjarstjórnar í samþykkt um bæjarstjórn og verkefni hennar. Bæjarráð ásamt bæjarstjóra fer með framkvæmdastjórn sveitarfélagsins, fjármálastjórn og starfsmannastjórn sé slík stjórn ekki öðrum falin. Í sumarleyfi bæjarstjórnar fer bæjarráð með fullnaðarafgreiðslu mála. Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
|
|

Dalvíkurbyggð








