Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Spurning mánaðarins

Gisting

Húsabakki, Tel. 862 2109
husabakki@husabakki.is www.husabakki.is
Velkomin á Húsabakka í faðm fjalla og friðlands
Við bjóðum fjölbreytta og hagkvæma gistiaðstöðu úti og inni fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa.Inni er í boði fjölbreytt gistiaðstaða fyrir 62 sem skiptast á 18 herbergi í mismunandi verðflokkum. Svefnpokapláss í 3-4 manna herbergjum eða á 18 manna svefnsal. Stórt og rúmgott fjölskylduherbergi. Húsabakki er sérlega vel staðsettur fyrir útivistar- og gönguhópa á Tröllaskaga hvað varðar nálægðina við hinar fjölmörgu og fjölbreyttu gönguleiðir og möguleika Tröllaskagans allt árið um kring. Friðland Svarfdæla liggur upp að Húsabakka með gönguleiðum, fræðslustígum og aðstöðu til fuglaskoðunar. Góð aðstaða er fyrir börn á öllum aldri, íþróttavöllur, leiksvæði, gönguleiðir, útieldhús með bálstæði í gróðurreit staðarins. Í næsta nágrenni er úrval af annarri afþreyingu eins og golf, sund, bátaferðir, gönguferðir með leiðsögn, hestaferðir og margt fleira. Við leggjum áherslu á notalegt andrúmsloft og persónulega þjónustu við gesti.

Syðri- Hagi, Tel. 466 1961/ 855 1861
sydrihagi@hotmail.com
Syðri Hagi býður uppá gistingu í heilsárshúsi á Árskógsströnd. Syðri Hagi er um 15 km frá Dalvík og um 30 km frá Akureyri. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4 en hægt er að auka aðstöðuna í 8 með dýnum á gólfi. Syðri Hagi stendur við Eyjafjörð og er örstutt í fjöru til að veiða eða bregða sér á sjó. Eigendur Syðri Haga eru Úlla May Rögnvaldsson and Ármann Rögnvaldsson.



Ytri-vík / Kálfskinn Tel. 899 8000
sporttours@sporttours, www.sporttours.is 
Ytri-Vík Gamla húsið er steinhús á þremur hæðum sem byggt var 1929 og var þar stundaður búskapur bæði til sjós og lands til langs tíma en eftir að allur búskapur var lagður af, hófst þar ferðaþjónusta árið 1983 og síðan þá hefur húsið verið í stöðugri endurbyggingu. Í húsinu eru 7 svefnherbergi tveggja- og þriggjamanna og rúmar húsið 16 manns í uppbúin rúm. Í húsinu er fullbúið eldhús og borðstofa sem rúmar 25 manns og einnig lítil setustofa. Í kjallara hússins er gufubað og búningsaðstaða fyrir gesti og stór heitur pottur fyrir utan.
Frístundahúsin / Sumarhúsin
Bakki, Brekka og Hlíð (6-8 manna) eru hvert fyrir sig 50 fm. sumarhús með gistirými fyrir sex manns í rúmum. Tvö herbergi eru með tvíbreiðu rúmi og einbreiðri koju fyrir ofan, einnig lítill skápur og náttborð. Í stofu er leður sófasett, sjónvarp, video og útvarp.. Svefnloft sem rúmar allt að sex manns á dýnum. Í húsunum er allt það nauðsynlegasta í eldhúsi ss. hellur, ísskápur, örbylgjuofn, kaffikanna, ýmiss smá rafmagnstæki, borðbúnaður og flest öll önnur áhöld sem til þarf. Við húsin er stór verönd sem er yfirbyggð að hluta, þar er kolagrill, garðhúsgögn og að sjálfsögðu heitur pottur.
Gil og Sel (5 manna) eru tvö 37 fm. sumarhús með gistirými fyrir fimm. Eitt herbergi er með tveim 90 cm rúmum og einbreiðri koju, tvíbreiðum svefnsófa í stofu sem einnig er eldhús og borðstofa. Í húsunum er allt það nauðsynlegasta í eldhúsi ss. hellur, ísskápur, örbylgjuofn, kaffikanna, ýmiss smá rafmagnstæki, borðbúnaður og flest öll önnur áhöld sem til þarf, einnig er í húsunum sjónvarp, video og útvarp. Lítil yfirbyggð verönd er við enda húsana með heitum potti, kolagrilli, borði og stólum.
Snúður og Snælda (4 manna) eru tvö 27 fm. sumarhús með gistirými fyrir fjóra. Eitt herbergi er með tveim 90 cm rúmum og tvíbreiðum svefnsófa í stofu sem einnig er eldhús og borðstofa. Í húsunum er allt það nauðsynlegasta í eldhúsi ss. hellur, ísskápur, örbylgjuofn, kaffikanna, ýmiss smá rafmagnstæki, borðbúnaður og flest öll önnur áhöld sem til þarf, einnig er í húsunum sjónvarp, video og útvarp. Lítil yfirbyggð verönd er við enda húsana með heitum potti, kolagrilli, borði og stólum.
Í húsinum öllum eru sængur og koddar en rúmföt, handklæði, barnastólar og barnarúm fást gegn aukagjaldi.
Allar frekari upplýsingar eru á www.sporttours.is  



Fosshótel, Dalvík,  Tel. 466 3395 / 562 4000
bokun@fosshotel.is, dalvik@fosshotel.is  , www.fosshotel.is  
Fosshótel Dalvík (fyrrum Hótel Sóley) er nýtt og þægilegt ferðamannahótel á góðum stað á Dalvík. Á hótelinu eru 25 herbergi með sturtu/salerni, sjónvarpi, síma, þráðlausri internet tengingu og útsýni yfir nálæg fjöll og firði. Auk þess býður hótelið upp á 7 herbergi með sameiginlegri sturtu- og/salernis aðstöðu auk sameiginlegs eldhúss sem að kemur sér vel fyrir svefnpokagistingar og þá sem vilja ferðast ódýrt. Móttakan er bæði nýtískuleg og notaleg, þar er að finna sjónvarpshorn, bar og internet aðstöðu. Stórt morgunverðarrými er á hótelinu, sem einnig er hægt að nota sem sal fyrir hópa og ráðstefnur. Bakarí og veitingastaður eru á Dalvík og einnig er þar að finna aðra staði sem bjóða uppá fljótlega rétti. Fosshótel Dalvík leigir út fjallahjól og býður upp á ókeypis bílastæði.





GistihúsiðSkeiði Svarfaðardal, Tel. 466 1636
md@thule-tours.com, www.thule-tours.com
Íbúðarhúsið var byggt 1935, eftir að skriða féll á eldri bæinn og eyðilagði hann. Við endurbyggðum húsið 1999. Allt var endurnýjað nema burðarveggir. 
Í boði er gisting í stúdíó-íbúð með tveimur tveggja manna herbergjum og stofu með svefnaðstöðu. Gistirými fyrir allt að 8 manns.
Einnig er í boði gisting í "fjósinu" þar er eitt tveggja manna herbergi og svefnkoju-herbergi. Gistirými fyrir allt að 20 manns.
Fólk getur fengið að tjalda á túninu með frábæru útsýni, aðgang að eldhúsi og baðherbergi.




Dæli í Skíðadal, Tel. 466 1658
daeli@simnet.iswww.internet.is/daeli
Í Dæli er boðið uppá gistingu í uppgerðu 100m2 fjárhúsi sem staðsett er á Másstöðum í Skíðadal, sem er í 18 km fjarlægð frá Dalvík. Húsið er með öllum búnaði og möguleiki á gistingu fyrir 5 - 8 manns í rúmum. Þá getur fólk fengið að tjalda og gista í húsbílum á svæðinu í samráði við eigendur.

Vegamót á Dalvík, Tel. 865 8391
vegamot@vegamot.net www.vegamot.net 

Gamli bærinn á Vegamótum:
Við bjóðum gistingu í litlu fallegu húsi sem er byggt árið 1914 en hefur verið endurbyggt frá grunni í upprunalegum stíl. Það stendur bak við íbúðarhúsið á Vegamótum við hliðina á stórum og fallegum blóma- og trjágarði um 200 metra frá Sundlaug Dalvíkur. Húsið skiptist í stofu, eldhús og baðherbergi með sturtu og svefnloft. Í stofunni er góður svefnsófi þar sem tveir fullorðnir geta sofið en einnig er pláss fyrir börn á dýnum. Á svefnloftinu geta allt að 4 sofið á dýnum. Í eldhúsinu er eldavél og ísskápur ásamt flestum venjulegum tækjum og eldhúsáhöldum. Í stofu er sjónvarp og DVD spilari. Gestir geta einnig tengst internetinu í gegn um ljósleiðara og á þráðlausu neti. Garðurinn okkar er auðvitað frjáls til afnota fyrir gesti okkar. Hann er stór og fallegur og fullur af trjám og blómum. Í garðinum er aðgangur að heitum potti. Sunnan við garðinn er opið svæði þar sem er upplagt að fara í leiki, sparka bolta eða hoppa á trampólíni yngstu heimasætunnar!

Smáhýsin á Vegamótum:
Á Vegamótum eru einnig þrjú smáhýsi sem eru 15 fermetrar hvert. Hvert hús er eitt rými + snyrting og rúmar 4 svefnpláss á tvíbreiðu rúmi og svefnsófa. Einföld eldunaraðstaða, ekki sturta en við bjóðum í sund! Aðgangur að heitum potti.

Gimli:
Gimli er stórt hús í miðjum bænum á Dalvík með 8 herbergjum, sameiginlegum snyrtingum/sturtum og eldhúsaðstöðu, þráðlaust internet. Hægt að leigja hvert herbergi fyrir sig, aðra hæðina eða allt húsið eftir því hvað hentar best. Frábær kostur fyrir fjölskyldur sem vilja ferðast og dvelja saman. Heimilisleg og hugguleg aðstaða.

Frekari upplýsingar á www.vegamot.net eða með því að senda póst á vegamot@vegamot.net . Einnig er hægt að hringja í síma 466-1050 eða 865-8391.
Í lífsstílsblaðinu Í boði náttúrunnar - Vetur er að finna grein um gamla bæinn á Vegamótum. Erum einnig á facebook - Vegamót, gisting á Dalvík.
_______________________________
Vegamót gisting, Dalvík
620 Dalvík
Ísland
Sími: 865-8391
Heimasíða: www.vegamot.net
-------------------------------
Vegamót accommodation Dalvík
620 Dalvík
Iceland
Phone +354-865-8391
Web page: www.vegamot.net
-------------------------------

Tjaldsvæði í Dalvíkurbyggð í umsjón sveitarfélagsins


Tjaldsvæði Dalvíkur er í umsjá starfsfólks íþróttamiðstöðvar. Tjaldsvæðið er staðsett sunnan Dalvíkurskóla við hlið íþróttavalla og neðan íþróttamiðstöðvar/sundlaugar. Á tjaldsvæðinu eru snyrtingar og þvottaaðstaða með heitu og köldu vatni og sturtur. Fyrir húsbíla er losunarbúnaður fyrir skólp og tengi fyrir rafmagn. Heimilt er að aka tjöldum, vögnum og öðrum búnaði inn á tjaldsvæðið en við biðjum gesti að takmarka umferð bíla eins og mögulegt er. Umferð vélknúinna ökutækja er bönnuð milli kl. 23:00 og 07:00. Vinsamlega virðum næturró, sýnum tillitssemi og berum umhyggju fyrir þörfum annarra á tjaldsvæðinu.

Um leið og við óskum þess að gestir okkar eigi hér ánægjulega dvöl biðjum við þá að virða almennar reglur tjaldsvæða og ganga vel um. Vinsamlegast látið vita ef einhverju er ábótavant á svæðinu.Vinsamlegast gerið vart við ykkur í afgreiðslu sundlaugarinnar og greiðið aðgang.

Sími í íþróttamiðstöð er 466-3233, nettfang er sundlaug@dalvik.is .

Í Dalvíkurbyggð eru tvö önnur tjaldsvæði á vegum sveitarfélagsins, í Árskógi og við Húsabakka. Þau eru mikið notuð í tengslum við ættarmót um helgar á sumrin og þess vegna minna opin almennri umferð af götunni um helgar heldur en tjaldsvæðið á Dalvík.

Umsjón með tjaldsvæði í Árskógi hefur Kristján Sigurðsson, netfang hans er krsig@ismennt.is .
Umsjón með tjaldsvæði við Húsabakka hefur Eiríkur Helgason, hann er með farsíma 863 – 5051.

Tjaldsvæðin eru að öllu jöfnu opin frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert.

Gjaldskrá tjaldsvæðanna í Dalvíkurbyggð er eins á öllum stöðum:
Dvöl fyrir hverja einingu, húsbíl, fellihýsi osfrv. kostar 1.500 kr. á nótt í fyrstu tvær næturnar, síðan 750 kr. þá þriðju og síðan er frítt.
Gjald fyrir tjöld er 1000 kr. pr. nótt fyrstu tvær næturnar, síðan 500 kr. og eftir það frítt.
Leiga á rafmagni kostar 600 kr. pr. nótt á einingu.

  • Webcam
  • Kortakerfi
  • Sorphirða
  • Þjónustuver
  • Fjölmenningasetur
  • Skólamál í Árskógi
  • Fundargátt
  • Íbúðir til sölu

Viðburðadagatal

« maí 2012 »
m þ m f f l s
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31